Brúðkaupsmyndbönd
Dagurinn ykkar sagður sem kvikmynd — frá undirbúningi til síðasta dansins, með fallegasta landslag Íslands í bakgrunni.
Brúðkaupsmyndband sem þið horfið á aftur og aftur
Brúðkaupsdagurinn líður hraðar en nokkur annar dagur. Ljósmyndir geyma augnablikin, en myndbandið geymir röddina, heitin, hláturinn í ræðunum og fyrsta dansinn. Það er það sem þið, börnin ykkar og fjölskyldan munuð horfa á eftir mörg ár.
Við höfum myndað brúðkaup í Vestmannaeyjum, á Reynisfjöru og víðar um landið. Við vinnum hljóðlega og látlaust, svo þið og gestirnir getið notið dagsins án þess að hugsa um myndavélina.


Hvað er innifalið
Við fylgjum ykkur frá undirbúningi að síðasta dansi og úr upptökunum verða:
- Brúðkaupsmyndband — kvikmyndaleg frásögn af deginum með tónlist, heitum og ræðum.
- Stutt stikla — til að deila með fjölskyldu og vinum fljótlega eftir brúðkaupið.
- Drónaskot — þar sem aðstæður og reglur leyfa, svo landslagið fái að njóta sín.


Brúðkaup í íslenskri náttúru
Fleiri og fleiri pör koma til Íslands til að gifta sig í fámenni úti í náttúrunni — við fossa, á svörtum ströndum eða uppi á fjalli. Við hjálpum ykkur að velja staðinn og tímann með tilliti til veðurs og birtu og fylgjum ykkur á milli staða á deginum. Við vinnum á íslensku og ensku.
Bókið tímanlega
Sumardagsetningar bókast oft snemma. Segðu okkur frá dagsetningunni, staðnum og hvernig þið sjáið daginn fyrir ykkur, og við svörum með tilboði.
Dæmi um verk
Fá tilboð
Segðu okkur frá verkefninu og hvenær það á að fara fram — við svörum með tilboði.