Beinar útsendingar
Útsendingar með mörgum myndavélum frá íþróttum, bardagakvöldum, ráðstefnum, tónleikum og hátíðum — á YouTube, Facebook, Instagram eða í sjónvarpi.
Beinar útsendingar með mörgum myndavélum
Bein útsending gerir viðburðinn þinn aðgengilegan öllum, hvar sem þeir eru. En áhorfendur heima eru kröfuharðir: þeir vilja sjá það sem skiptir máli, heyra vel og fylgjast með án truflana. Þess vegna er bein útsending miklu meira en sími á þrífæti.
Við höfum sent út Evrópumeistaramót GAMMA í MMA, bardagakvöld og leik í undankeppni HM FIBA í körfubolta. Við klippum á milli myndavéla í rauntíma, bætum við nöfnum, stigatöflu og merkjum styrktaraðila og sendum út á YouTube, Facebook eða þann miðil sem þú velur.


Hvað við sendum út
- Íþróttir og bardagakvöld — hraðinn í leiknum skilar sér heim í stofu, með stigatöflu og lýsanda ef óskað er.
- Ráðstefnur, fundir og aðalfundir — fyrirlesari og glærur saman á skjánum, opið eða lokað streymi, líka í Teams eða Zoom.
- Tónleikar og hátíðir — fyrir þá sem komust ekki, með hljóði beint úr hljóðkerfinu.
- Streymi á YouTube, Facebook og Instagram — á einn eða fleiri miðla í einu.


Svona gengur það fyrir sig
Fyrir útsendinguna förum við yfir staðinn, nettenginguna og hljóðið og gerum prufukeyrslu. Stöðug nettenging með snúru er það mikilvægasta, og við látum vita fyrirfram ef eitthvað vantar. Á meðan á útsendingu stendur sér teymið okkar um myndavélar, útsendingarstjórn og grafík, svo þú getir einbeitt þér að viðburðinum.
Eftir útsendinguna færðu upptökuna til eigin nota, og ef óskað er klippum við samantekt eða einstaka fyrirlestra úr henni.
Dæmi um verk
Fá tilboð
Segðu okkur frá verkefninu og hvenær það á að fara fram — við svörum með tilboði.