Fyrirtækjamyndbönd

Sýndu fyrirtækið eins og það er í raun.

Gott fyrirtækjamyndband segir á tveimur mínútum það sem tekur langan tíma að skrifa: hver þið eruð, hvað þið gerið og fyrir hverja. Við hjálpum til við að móta söguna, skrifum handrit og myndum fólkið, vinnustaðinn og verkin.

Myndbandið nýtist á forsíðu vefsins, í sölukynningum, á vörusýningum og í ráðningum. Úr sama efni klippum við líka styttri útgáfur fyrir samfélagsmiðla og auglýsingar.

Fá tilboð

Dæmi um verk

Algengar spurningar

Hversu langan tíma tekur verkefnið?

Það fer eftir umfangi. Við gerum tímaáætlun strax í upphafi svo þú vitir hvenær myndbandið verður tilbúið.

Getur myndbandið verið á ensku?

Já, við vinnum á íslensku og ensku og getum bætt við texta á báðum tungumálum.

Hvað kostar þetta?

Verðið fer eftir umfangi: lengd, fjölda myndavéla og tökumanna, staðsetningu og eftirvinnslu. Segðu okkur frá verkefninu og við svörum með tilboði.

Önnur þjónusta

Öll þjónusta →

Fá tilboð

Segðu okkur frá verkefninu og hvenær það á að fara fram — við svörum með tilboði.

Þegar þú sendir opnast póstforritið þitt með skilaboðunum tilbúnum.