Streymi frá ráðstefnum og fundum

Fleiri gestir án þess að stækka salinn.

Með beinu streymi nær ráðstefnan, aðalfundurinn eða kynningin til fólks hvar sem það er statt. Við sýnum fyrirlesara og glærur saman á skjánum, svo áhorfendur á netinu fylgjast jafn vel með og þeir sem sitja í salnum.

Á blönduðum viðburðum tengjum við fjarfyrirlesara inn í útsendinguna og spurningar af netinu inn í salinn. Streymið getur verið opið öllum eða lokað, til dæmis á einkasíðu, í Teams eða Zoom.

Fá tilboð

Dæmi um verk

Algengar spurningar

Getur streymið verið lokað?

Já. Útsendingin getur verið óskráð á YouTube, á lokuðu svæði á vefnum ykkar eða í Teams eða Zoom.

Fáum við upptöku af fyrirlestrunum?

Já. Eftir viðburðinn færðu upptökuna og ef óskað er klippum við hvern fyrirlestur í sérstakt myndband.

Hvað kostar þetta?

Verðið fer eftir umfangi: lengd, fjölda myndavéla og tökumanna, staðsetningu og eftirvinnslu. Segðu okkur frá verkefninu og við svörum með tilboði.

Af blogginu

Önnur þjónusta

Öll þjónusta →

Fá tilboð

Segðu okkur frá verkefninu og hvenær það á að fara fram — við svörum með tilboði.

Þegar þú sendir opnast póstforritið þitt með skilaboðunum tilbúnum.