Tónleikar og hátíðir
Stemningin, tónlistin og fólkið — allt í einu myndbandi.
Á hátíð gerist margt í einu: tónlist á sviðinu, fólk í mannfjöldanum og umhverfið í kring. Við vinnum með fleiri en einni myndavél og dróna til að ná öllu og klippum myndband sem fær fólk til að vilja mæta næst.
Við höfum meðal annars myndað Hljómey, Goslok, Puffin Run, Vestmannaeyjahlaupið og The Color Run. Myndböndin nýtast til að selja miða á næsta ár, gleðja styrktaraðila og deila á samfélagsmiðlum.
Fá tilboðDæmi um verk
Algengar spurningar
Getið þið líka sent tónleikana út beint?
Já, upptöku og beina útsendingu má sameina á sama viðburði.
Megum við nota tónlistina í myndbandinu?
Ef lög annarra eru notuð þarf leyfi rétthafa. Við hjálpum þér að finna lausn, til dæmis með tónlist sem má nota frjálst.
Hvað kostar þetta?
Verðið fer eftir umfangi: lengd, fjölda myndavéla og tökumanna, staðsetningu og eftirvinnslu. Segðu okkur frá verkefninu og við svörum með tilboði.
Af blogginu
Önnur þjónusta
Fá tilboð
Segðu okkur frá verkefninu og hvenær það á að fara fram — við svörum með tilboði.