Auglýsingar

Auglýsingar, fyrirtækjamyndbönd, viðtöl og efni fyrir samfélagsmiðla fyrir veitingastaði, verslanir og fyrirtæki — gert til að selja.

Auglýsingar og kynningarmyndbönd sem selja

Fólk ákveður á nokkrum sekúndum hvort það staldrar við. Gott myndband sýnir á augabragði hvað þú býður, hvernig það lítur út og af hverju fólk ætti að velja þig — og það gerir það betur en texti eða ljósmynd ein og sér.

Við höfum gert kynningarmyndbönd fyrir veitingastaði og kaffihús eins og Dass, Vöruhúsið, Soup Station, Ranya Kebab Café og Gott, fyrirtækjamyndband fyrir Stalvik og auglýsingu fyrir Eyjascooter. Í hverju verkefni byrjum við á spurningunni: hvað á myndbandið að fá fólk til að gera?

Fá tilboð í auglýsingu

Hvað við gerum

  • Auglýsingar fyrir veitingastaði og kaffihús — matur, drykkir, stemning og fólkið á staðnum, myndað þannig að gestir fá löngun til að koma.
  • Fyrirtækjamyndbönd — hver þið eruð, hvað þið gerið og fyrir hverja. Nýtast á forsíðu vefsins, í sölu og í ráðningum.
  • Myndbönd fyrir samfélagsmiðla — stutt, lóðrétt myndbönd fyrir Instagram, TikTok og Facebook, oft mörg úr einum tökudegi.
  • Viðtöl — stjórnendur, starfsfólk og ánægðir viðskiptavinir segja frá með eigin orðum. Fátt er trúverðugra.

Skoða dæmi

Frá hugmynd til tilbúins myndbands

Við byrjum á stuttum fundi um markmiðið, markhópinn og hvar myndbandið á að birtast. Út frá því mótum við hugmynd og tökuáætlun, svo tökudagurinn nýtist vel og trufli reksturinn sem minnst — á veitingastöðum er oft best að mynda fyrir opnun.

Eftir tökur sjáum við um klippingu, litaleiðréttingu, hljóð og tónlist sem má nota í auglýsingum. Þú færð aðalmyndbandið fyrir vefinn og útgáfur í réttum stærðum fyrir samfélagsmiðla, bæði láréttar og lóðréttar. Ef þörf er á tökum við líka ljósmyndir af matnum, vörunum eða fólkinu sama dag.

Hvað kostar auglýsing?

Verðið fer eftir umfanginu: hve langan tökutíma þarf, hversu mörg myndbönd og útgáfur þú vilt fá, hvort ljósmyndir fylgja og hvort tökur fara fram utan höfuðborgarsvæðisins. Segðu okkur frá verkefninu og við sendum þér tilboð.

Fá tilboð

Dæmi um verk

Fá tilboð

Segðu okkur frá verkefninu og hvenær það á að fara fram — við svörum með tilboði.

Þegar þú sendir opnast póstforritið þitt með skilaboðunum tilbúnum.